Rúnar: Algjör skandall og ég er brjálaður Stefán Árni Pálsson skrifar 19. september 2010 20:26 ,,
Það er gríðarlega sárt að missa sigurinn úr höndunum eftir að hafa verið 3-2 yfir þegar lítið var eftir,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR-inga, eftir jafnteflið gegn Grindvíkingum í kvöld en leiknum lauk 3-3. Leikurinn var hluti af 21.umferð Pepsi-deildar karla og fór fram í grenjandi rigningu í Grindavík. ,,Leikurinn var mjög kaflaskiptur, við byrjuðum mun betur og hefðum átt að skora fleiri en tvö mörk í fyrri hálfleik. Grindvíkingar koma svo sterkir inn í leikinn í lok fyrri hálfleiks og voru líklega betri aðilinn í þeim síðari,“ sagði Rúnar. ,,Ég er bara hundfúll að hafa ekki náð að setja þriðja markið mun fyrr. Við áttum að koma boltanum í netið nokkrum sinnum í fyrri hálfleiknum og komast í 3-0 sem hefði sennilega klárað leikinn. Í staðinn hleypum við þeim inn í leikinn þegar þeir minnka muninn og það átti aldrei að gerast,“ sagði Rúnar. ,,Ég er síðan alls ekki sáttur með vítið sem var dæmt á okkur. Dómarinn var í mun betri aðstöðu en línuvörðurinn og það er með hrein ólíkindum að hann hafi flaggað á brot. Brotið á að hafa átt sér stað í fjærhluta vítateigsins frá honum séð og það er bara ekki möguleiki að hann hafi séð þetta betur en Valgeir ,dómari leiksins. Þetta er algjör skandall og ég er brjálaður yfir þessu,“ sagði Rúnar virkilega svekktur að leikslokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Fleiri fréttir Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Sjá meira