Capello: Varð að taka fyrirliðastöðuna af Terry Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. maí 2010 11:15 Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands. Nordic Photos / Getty Images
Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands segir að hann hafi ekki átt neinna kosta völ en að taka fyrirliðabandið af John Terry í vetur. Mikið var fjallað um einkalíf John Terry í vetur en því var haldið fram að hann hefði haldið framhjá eiginkonu sinni með fyrrum kærustu og barnsmóður Wayne Bridge. Terry og Bridge voru á sínum tíma samherjar í Chelsea sem og landsliðsfélagar. Bridge hætti að gefa kost á sér í landsliðið eftir þetta. „Ég átti engan annan kost. Hann veit vel að ég tel að gildismat sé öllu öðru mikilvægara," sagði Capello í viðtali við ítalska fjölmiðla. „Ég var staddur á Ítalíu þegar ég fékk símtal og mér var greint frá stöðu mála. Ég hugsaði um þetta og hringdi svo í John. Við töluðum saman enda er hann fullorðinn maður og alvörugefinn einstaklingur." Capello fór svo aftur til Englands og kallaði Terry á sinn fund þar sem Capello tilkynni honum ákvörðun sína. „Ég sagði honum að fyrirliðinn yrði að vera fyrirmynd annarra. Ég gat því ekki leyft honum að halda fyrirliðastöðunni." En hann óttaðist aldrei að missa Terry úr landsliðinu. „Þetta er eitt af því sem getur gerst í lífinu. Terry er einn þeirra sem breytir miklu í liðinu og hann er sannur leiðtogi."
Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira