Hársbreidd frá kjarnorkuárás á Kína Óli Tynes skrifar 14. maí 2010 15:27 Nixon og Brezhnev í Moskvu árið 1974.
Kínverskur sagnfræðingur segir að árið 1969 hafi Sovétríkin verið komin á fremsta hlunn með að gera kjarnorkuárás á Kína. Aðeins hafi verið hætt við árásina eftir að Bandaríkjamenn hótuðu að gera gagnárás á Sovétríkin. Liu Chenshan hefur skrifað greinaflokk í tímarit sem kommúnistaflokkurinn hefur lagt blessun sína yfir. Það þykir benda til þess að hann hafi fengið aðgang að leyniskjölum stjórnvalda. Í greinaflokkinum hefur Liu fjallað um fimm skipti sem Kína átti á hættu að þola kjarnorkuárás frá árinu 1949. Heiftarleg landamæradeila Liu segir að mesta hættan hafi steðjað að árið 1969. Þá hafi Sovétríkin verið búin að undirbúa kjarnorkuárás á Kína og komin á fremsta hlunn með að hefja hana. Þetta ár áttu Sovétríkin og Kína í heiftarlegri landamæradeilu. Hersveitir landanna höfðu háð harða bardaga við Ussuri fljót og yfir eittþúsund manns fallið beggja vegna landamæranna. Liu segir að stjórnvöld í Kreml hafi varað Bandaríkin við yfirvofandi árás. Bandaríkjamönnum hafi verið sagt að ætlunin væri að „þurrka út kínversku ógnina og losna við þessa nútíma ævintýramenn". Þriðja heimsstyrjöldin Bandaríkjamenn voru beðnir um að vera hlutlausir. Liu segir að þvert á móti hafi Bandaríkjamenn hótað því að ef Sovétríkin gerðu árás á Kína myndu þeir gera gagnárásir á 130 borgir í Sovétríkjunum. Hann vitnar í Sovéska ráðherra og diplomata máli sínu til stuðnings. Hinn 15. október árið 1969 segir hann að Alexei Kosygin forsætisráðherra hafi sagt við Leonid Brezhnev leiðtoga Sovétríkjanna að Bandaríkjamenn hefðu gert ítarlega áætlun um kjarnorkustríð gegn Sovétríkjunum ef þau réðust á Kína. Liu segir að síðar þennan sama dag hafi Anatoly Dobrynin sendiherra Sovétríkjanna í Washington flutt Brezhnev svipuð skilaboð. „Ef Kína verður fyrir kjarnorkuárás munu Bandaríkjamenn líta á það sem upphaf þriðju heimsstyrjaldarinnar. Bandaríkjamenn hafa svikið okkur," sagði Dobrynin. Sovétríkin meiri ógn Sagnfræðingurinn heldur því fram að Bandaríkjamenn hafi litið á Sovétríkin sem meiri ógn við sig en Kína. Þeir hafi viljað sterkt Kína til þess að vega upp á móti veldi Sovétríkjanna. Richard Nixon sem þá var forseti er einnig sagður hafa haft áhyggjur af áhrifum kjarnorkuárásar á 250 þúsund bandaríska hermenn sem þá voru staðsettir í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu.
Mest lesið Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Veður Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Fleiri fréttir Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Sjá meira