Kjósendur hafa sett Obama skorður 4. nóvember 2010 06:00 Repúblikanarnir Eric Cantor, agameistari nýja meirihlutans í fulltrúadeild, og John Boehner, nýr forseti fulltrúadeildar, kölluðu fjölmiðla á sinn fund í gærmorgun. fréttablaðið/AP
Barack Obama Bandaríkjaforseti segist vonast til þess að geta starfað með nýjum meirihluta Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild, einkum á sviði orkumála og menntamála. Hann viðurkenndi að úrslit þingkosninganna á þriðjudag sýndu megna óánægju kjósenda með það hve hægt hefði miðað í efnahagsmálum. Jafnframt sagðist hann bera fulla ábyrgð á því hve hægt hefði gengið. Hins vegar sagði hann ekkert um það hvort hann ætlaði að breyta um stefnu í efnahagsmálum, eins og andstæðingar hans krefjast. Demókrataflokkurinn missti meirihluta sinn í fulltrúadeild þingsins, en hélt honum í öldungadeildinni, eins og skoðanakannanir höfðu bent til. Erfið staða í efnahagsmálum virðist hafa ráðið mestu um þessi úrslit, ásamt verulegu fylgi við Teboðshreyfingu Repúblikanaflokksins, eftir því sem fram kom í útgöngukönnunum. Teboðshreyfingin náði töluverðum árangri í kosningunum, en Sharron Angle tókst þó ekki að fella Harry Reid, öldungadeildarþingmann Nevada-ríkis, sem verður því áfram leiðtogi meirihlutans í öldungadeild. Öðrum áberandi fulltrúa Teboðshreyfingarinnar, Christine O’Donnell, tókst heldur ekki að komast á þing fyrir Delaware. Repúblikaninn John Boehner tekur hins vegar við af Nancy Pelosi sem forseti fulltrúadeildar. Hann hefur krafist þess að Obama skipti nú algerlega um stefnu í efnahagsmálum. Úrslit kosninganna sýni að kjósendur krefjist þess. „Við vonum að Obama forseti muni nú virða vilja fólksins, breyta um stefnu og skuldbinda sig til þess að gera þær breytingar sem það krefst,“ sagði Boehner í gær. „Að svo miklu leyti sem hann er viljugur til þess, þá erum við reiðubúin til að starfa með honum.“ Þegar úrslitin voru orðin nokkuð ljós hringdi Obama í Boehner, sem sagði forsetanum að hann væri reiðubúinn í samstarf um þau mál sem skiptu bandarísku þjóðina mestu. Boehner segist líta svo á að mestu skipti að draga úr ríkisútgjöldum og fjölga atvinnutækifærum. Margir búast við harðvítugri togstreitu nýja meirihlutans við forsetann næstu tvö árin, þannig að forsetinn eigi mjög erfitt með að koma málum í gegnum þingið. Erfiðast gæti þó reynst fyrir repúblikana að standa hart gegn ráðstöfunum í efnahagsmálum, sem ekki mega bíða vegna þess hve ástandið er enn erfitt. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira