Berst með kjafti og klóm til að viðhalda menningarstarfi Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. ágúst 2010 20:37 Einar Örn Benediktsson vill ekki sjá niðurskurð til menningarmála. „
Ég er staðfastur í því og viss um að það verður einhver flugeldasýning í gangi," segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi og formaður menningar- og ferðamálaráðs, um flugeldasýninguna sem venjulegast markar endalok Menningarnætur Reykjavíkurborgar. Hann bendir á að flugeldasýningin hafi verið kostuð af fyrirtæki sem sé Orkuveita Reykjavíkur. Ef það fyrirtæki sjái sér ekki fært að kosta flugeldasýninguna áfram þá verði að leita annarra leiða. Jón Gnarr borgarstjóri hefur hins vegar viðrað þá hugmynd að hætt verði við flugeldasýninguna Einar segist ekki vera viss um hvort líta megi á flugeldasýninguna sem sjálfstæðan menningaratburð eða hvort að um sé að ræða hluta af menningaratburði. En hann segir alveg víst að hann vilji ekki sjá niðurskurð til menningarmála. „Ég myndi frekar vilja sjá aukningu til menningar í Reykjavík frekar en hitt. Því að aðsókn á söfnin, bókasöfn og listasöfn í Reykjavík hefur aukist jafnt og þétt," segir Einar. Hann segir að það verði barist með kjafti og klóm til að viðhalda því menningarstarfi sem nú þegar sé unnið á vegum borgarinnar. En hann bendir á að horfa verði á flugeldasýninguna í víðu samhengi. Jafn mikið fé fari í flugeldasýninguna og Reykjavíkurborg ver í rekstur lítils danshúss. „Hvort er meira virði að setja það í danshús eða flugeldasýningu," spyr Einar Örn. „Er hægt að hafa flugeldasýningu svo að björgunarsveitin fái peningana. Svarið er já. Við munum leita leiða til að finna aðila að flugeldasýningunni," segir Einar sem klikkir út með því að segja að það hafi líka komið upp hugmynd um að láta friðarsúluna í Viðey blikka ótt og títt í staðin fyrir flugeldasýninguna. „Ég myndi þá vilja að hún blikkaði þrjú löng, tvö stutt og þrjú löng," segir Einar.
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira