Innlent

Enginn hefði getað tekið við föngunum

Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í Kópavogsfangelsi í morgun. Fangelsisstjórinn þakkar fyrir að eldurinn hafi ekki breiðst út og valdið tjóni því enginn hefði getað tekið við föngunum sem þar eru vistaðir sökum plássleysis.

Í fangelsinu í Kópavogi eru tólf klefar og þar eru nú vistaðir tólf fangar. Átta karlar og fjórar konur. Eldurinn kom upp í klefa á annarri hæð í kvennaklefa. Ekkert er staðfest um eldsupptök en heimildir fréttastofu segja að margt bendi til að fangi hafi kveikt í fatahrúgu sem lá á gólfi klefans. Sem betur fer gátu fangaverðir brugðist skjótt við og slökkt eldinn áður en hann náði að breiðast út.

Eins og margoft hefur komið fram í fréttum eru fangelsi landsins löngu sprunginn. Þar af leiðandi eiga starfsmenn fangelsanna í fullu fangi að mæta svona skakkaföllum.

„Í fangelsum viljum hafa nokkur pláss laus t.d. til að hægt sé að færa fanga til og gera ráðstafanir ef eitthvað kemur upp á. Ef af einhverjum ástæðum hefði þurft að tæma þetta fangelsi þá eigum við ekki í nein hús að venda. Það eru engin pláss laus í fangelsunum," segir Guðmundur Gíslason, fangelsisstjóri.

Fangelsin þoli einfaldlega ekki að neitt komi upp á. Hvergi séu pláss fyrir fanga sem þurfi að færa til.

„Það er mjög óþægilegt. Þetta er auðvitað ekkert nýtt fyrir okkur því við höfum búið við þetta árum saman en auðvitað viljum við að það sé gripið til einhverra ráðstafana," segir Guðmundur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×