Ferguson kallar eftir drápseðlinu i sínu liði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. október 2010 10:30 Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Mynd/AP
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United segir að sínir menn þurfi að fara að klára leiki ætli þeir sér að eiga möguleika í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn. Chelsea er nú með fimm stiga forskot á United og er komið vel á stað með að verja titilinn sem liðið vann síðasta vor. Ferguson talar sérstaklega um leiki Manchester United á útivelli á móti Fulham og Everton þar sem United-liðið var í góðri stöðu til að vinna en missti báða leiki niður í jafntefli. „Þetta lið í dag klárar ekki leiki sína eins vel og það ætti að gera," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, í viðtali við Inside United. „Á Goodison fengum við þrjú eða fjögur tækifæri í stöðunni 3-1 til þess að gera út um leikinn en nýttum þau illa og það kom í bakið á okkur í lokin. Það er samt óhugsandi að missa niður tveggja marka forustu í uppbótartíma," sagði Ferguson. „Drápseðlið vantar í liðið eins og er og við þurfum að gera bragabót á því. Það er ekki vandamálið að skora mörk, við skoruðum þrjú á móti Liverpool, Everton og West Ham og skoruðu tvö á móti Fulham á útivelli og þrjú í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Það sýnir að við getum skorað mörk. Það sem er fyrst og fremst að er að við erum ekki að ganga frá okkar leikjum," sagði Ferguson. „Maður hefði búist við því að Chelsea myndi klára þessa leiki sem þeir eru búnir að spila. Á sama tíma höfum við farið á erfiða útivelli á móti Fulham og Everton auk þess að spila við Liverpool. Þetta eru allt erfiðir leikir. Liverpool, Arsenal og við höfum öll mætt sterkum liðum í upphafi tímabils en Chelsea á eftir að lenda í sínum erfiðu prófum," sagði Ferguson.
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Meiddist í Portúgal Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Sjá meira