Gaf bresku rannsóknarnefndinni röng svör 8. febrúar 2010 08:31 Hans Blix segir að fyrrverandi utanríkisráðherra Breta hafi nýverið gefið breskri rannsóknarnefnd röng svör. Mynd/AP
Hans Blix, fyrrverandi yfirmaður vopnaeftirslits Sameinuðu þjóðanna, segir að Jack Straw, fyrrverandi utanríkisráðherra Breta, hafi gefið röng svör þegar hann bar nýverið vitni fyrir rannsóknarnefnd sem fer ofan í saumana á aðdraganda Írakstríðsins. Umfangsmikil rannsókn stendur nú yfir í Bretlandi um aðdragandann að innrásinni í Írak 20. mars 2003. Til að mynda kom Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir nefndina í lok janúar. Blix segist í samtali við breska ríkisútvarpið vera afar undrandi yfir mörgu af því sem Straw sagði þegar hann kom fyrir nefndina. Til að mynda hafi Straw sagt að vopnaeftirlitsmönnum hafi verið meinaður aðgangur að ákveðnum svæðum sem voru sérstaklega tiltekin í ályktunum Sameinuðu þjóðanna. Þetta segir Blix að sé rangt og það eigi Straw að vita. Þvert á móti hafi samstarfsvilji Íraka aukist á degi hverjum mánuðina fyrir innrásina. Straw kemur aftur fyrir rannsóknarnefndina síðar í dag og verður vafalítið spurður út í þessi orð fyrrverandi yfirmanns vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Sjá meira