Brutust í gegnum múrinn 8. febrúar 2010 06:00 Hollendingurinn Ram Houben var talinn hafa verið í skynlausu ástandi í 23 ár en í ljós kom að hann gat tjáð sig með aðstoð tölvu. Nordicphotos/AFP
Vísindamenn í Cambridge í Bretlandi og Liege í Belgíu segjast hafa náð sambandi við nokkra sjúklinga sem taldir hafa verið í skynlausu ástandi, sem er frábrugðið dásvefni að því leyti að sjúklingarnir eru vakandi en sýna engin merki þess að skynja neitt í umhverfi sínu. Vísindamennirnir beittu stafrænni segulómun sem gerir þeim kleift að greina heilavirkni sjúklinganna. Sjúklingarnir voru spurðir einfaldra spurninga og beðnir að svara játandi eða neitandi með hugsunum sínum, þannig að til dæmis mikil hreyfing tákni nei en kyrrt ástand tákni já. Sjúklingarnir voru til dæmis beðnir um að ímynda sér tennisleik ef þeir vildu svara játandi en rólega gönguferð á götu í borg ef þeir vildu svara neitandi. Einn sjúklinganna er belgískur maður sem lenti í alvarlegu bílslysi fyrir sjö árum. Honum tókst að gefa rétt svör við fimm af sex spurningum, sem öll tengdust ævi hans sjálfs. Vísindamennirnir birtu niðurstöður rannsókna sinna í læknatímaritinu New England Journal of Medicine í síðustu viku. Rannsóknin náði til 54 sjúklinga. Í ljós kom að fimm þeirra gátu stjórnað heilastarfsemi sinni að einhverju leyti. Af þessum fimm gátu fjórir notað fyrrgreinda aðferð til þess að svara játandi eða neitandi, en einungis þrír þeirra reyndust þó færir um að eiga í raunverulegum samskiptum við vísindamennina. Rannsóknin vekur því vonir um að hægt verði að ná sambandi við þá sjúklinga, sem virðast vera í skynlausu ástandi en eru í reynd með fullri meðvitund. Með þessari aðferð væri meðal annars hægt að spyrja sjúklingana út í líðan þeirra. Niðurstöðurnar vekja einnig upp ýmsar siðferðilegar spurningar. Í Bretlandi til dæmis, samkvæmt því sem fram kemur á fréttavef BBC, er heimilt að taka úr sambandi tækjabúnað, sem heldur sjúklingi á lífi, ef fullvíst er talið að hann komist ekki aftur til meðvitundar. Hins vegar er ekki heimilt að taka slíkan búnað úr sambandi ef sjúklingurinn hefur með viðbrögðum sínum sýnt fram á að hann sé með meðvitund, jafnvel þótt hann lýsi sjálfur eindregnum vilja sínum til þess að búnaðurinn verði tekinn úr sambandi. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira