Markalaust hjá Arsenal og City í leiðinlegum knattspyrnuleik Hjalti Þór Hreinsson skrifar 24. apríl 2010 18:18 Augnablikið þegar mestu lætin voru á vellinum. Adebayor kemur inn á gegn sínum gömlu félögum. Hann setti mark sitt ekki á leikinn, frekar en aðrir leikmenn. Getty Images
Arsenal og Manchester City gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn var ævintýralega leiðinlegur. Fyrri hálfleikurinn var eins leiðinlegir og þeir verða. Fyrsta skotið kom eftir 40 mínútur og það var ekki gott. Markalaust í hálfleik. Emanuel Adebayor byrjaði á bekknum en kom inn á í seinni hálfleik hjá City gegn sínum gömlu félögum í Arsenal. Hann fékk hressilegt baul í hvert skipti sem hann snerti boltann. Seinni hálfleikur var svipaður og sá fyrri. Shay Given varði vel frá Abou Diaby en meiddist í leiðinni. Hann var borinn af velli og fór líklega úr axlarlið. Hann þurfti súrefni á leiðinni útaf og fékk klapp frá áhorfendum en í hans stað kom Gunnar Nielsen, Færeyingurinn knái, inn á í sínum fyrsta leik fyrir City. Hann er jafnframt fyrsti leikmaðurinn frá Færeyjum til að spila í ensku úrvalsdeildinni. Bæði lið fengu hálffæri áður en yfir lauk og Mike Dean flautaði leikinn af, áhorfendum til mikillar ánægju. Sol Campbell átti góðan leik fyrir Arsenal en Fabio Capello var á vellinum. Gárungar telja að Campbell gæti verið að spila sig inn í enska landsliðið fyrir HM en aldursforsetinn í Arsenal hefur leikið vel undanfarið. Ekki eru allir sammála því að Campbell eigi skilið sæti í landsliðinu á nýjan leik en hann spilaði vel í dag. Það var mikið í húfi fyrir bæði lið, Arsenal á nú ekki lengur möguleika á titlinum en City er einu stigi á eftir Tottenham í keppninni um fjórða sætið. Jafnteflið kom því hvorugu liðinu vel.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira