Innlent

Grunnskólanemum fækkar næstu árin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Grunnskólabörn. Mynd/ Anton.
Grunnskólabörn. Mynd/ Anton.
Nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 42.929 haustið 2009, auk þess sem 89 börn stunduðu nám í 5 ára bekk í 5 skólum. Grunnskólanemendum hefur fækkað um 582 frá síðastliðnu skólaári, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Nemur fækkunin um 1,3%.

Hagstofan segir að gera megi ráð fyrir að nemendum grunnskóla haldi áfram að fækka næstu árin því þeir árgangar sem munu hefja grunnskólanám eru fámennari en þeir árgangar sem ljúka munu grunnskólanámi.

Grunnskólanemendur á Íslandi voru flestir haustið 2003, 44.809. Frá þeim tíma hefur grunnskólanemendum fækkað um 1.880 nemendur. Þessar tölur koma úr gagnasafni Hagstofu Íslands, sem hefur safnað upplýsingum um nemendur í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert síðan haustið 1997.

Grunnskólanemendum sem hafa erlent tungumál að móðurmáli fjölgar ár frá ári og hafa aldrei verið fleiri, þrátt fyrir aukinn brottflutning frá landinu. Síðasta haust voru 2.314 grunnskólanemendur skráðir með erlent móðurmál eða 5,4% grunnskólanema. Haustið þar á undan höfðu 2.069 grunnskólanemar erlent móðurmál, eða 4,8% nemenda. Eins og undanfarin ár eru flestir pólskumælandi, 760 talsins,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×