Rauðstakkar búa sig undir ný átök 26. apríl 2010 06:00 Mótmælandi hallar sér með skjöld sinn og prik innan seilingar. nordicphotos/AFP
Rauðstakkar í Taílandi bjuggu sig í gær undir átök við lögreglu og her, eftir að Abhisit Vejajiva forsætisráðherra hafði hafnað sáttaboði þeirra, sem fólst í því að mótmælum yrði hætt ef þing landsins yrði leyst upp. Mótmælendurnir höfðu lagt undir sig eina götu í Bangkok og hafst þar við í 23 daga. Búist var við að stjórnvöld myndu láta sverfa í stál til að rýma götuna. Til harðra átaka kom í götunni á fimmtudag og lét þá að minnsta kosti einn maður lét lífið, en 10. apríl höfðu 25 manns látist þegar herinn reyndi að rýma búðir sem mótmælendur hafa komið sér þar upp. „Rauðstakkarnir eru lýðræðishreyfing fyrst og fremst, þótt margir þeirra séu stuðningsmenn Thaksins, fyrrverandi forsætisráðherra,“ segir Viktor Sveinsson, sem býr í Taílandi og rekur þar ferðaskrifstofuna Óríental. „Þeir krefjast þess að núverandi stjórn, sem óneitanlega situr í skugga valdaráns hersins, fari frá völdum.“ Thaksin Shinavatra hlaut yfirburða kosningu árið 2001 en var hrakinn frá völdum haustið 2006 eftir langvarandi mótmæli gulstakka. Allar götur síðan hafa svonefndir rauðstakkar og gulstakkar skipst á um að standa fyrir mótmælum í landinu gegn stjórnvöldum, allt eftir því hvort forsætisráðherrann hefur verið hliðhollur Thaksin eða ekki. „Gulstakkarnir eru hins vegar konungssinnar númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Viktor, sem fylgist vel með gangi mála í Bangkok þótt hann búi í Hua Sin, strandbæ um 200 kílómetrum suður af höfuðborginni. Konungssinnar voru frá upphafi ósáttir við Thaksin, enda kom hann ekki úr röðum valdaklíkunnar í kringum konunginn eins og fyrri forsætisráðherrar höfðu gert. „Annars verður nú að segja að pólitíkin í Taílandi ristir ekkert ofboðslega djúpt. Stemningin skiptir oft öllu máli og fólk klæðir sig upp í afgerandi litum eftir því með hverjum það er í liði,“ segir Viktor. „Síðan bíða allir eftir því hvað herinn gerir, en hann hefur gert valdarán sautján eða átján sinnum síðan landið hætti að vera hreint konungsríki.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira