Innlent

Keypti sér orkídeu og fann kakkalakka

Valur Grettisson skrifar
Kakkalakki. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Kakkalakki. Myndin tengist ekki fréttinni beint.

„Ég frétti af þessu í gær," segir Þórarinn H. Ævarsson, framkvæmdastjóri Ikea, en viðskiptavinur hafði samband við verslunina vegna kakkalakka sem fundust inn á heimili hans.

Viðskiptavinurinn var nýbúinn að kaupa orkídeu hjá versluninni og tengdi því saman kakkalakkann og blómið.

„Við erum búnir að selja á þriðja þúsund plantna og ekki orðið varir við þetta áður," segir Þórarinn og bendir á að plönturnar þurfi að fara í gegnum sóttkví og því ólíklegt að kakkalakki hafi fylgt með blóminu.

Hann segist þó alls ekki útiloka að svo hafi verið og því hafi hann boðið konunni afnot af meindýraeyðum sem starfa hjá versluninni og koma í veg fyrir að mýs úr nærliggjandi hrauni komist inn í verslunina.

„Þar fyrir utan þá hefðum við sennilega tekið eftir því ef kakkalakkar væru á búðargólfinu," segir Þórarinn sem hefur ekki orðið var við óværuna í búðinni.

Vísir ræddi við konuna sem fann kakkalakkann. Hún sagðist hafa farið með kvikindið til náttúrufræðistofnunnar. Þá kom í ljós að hún var önnur konan sem keypti orkídeu og fann kakkalakka í kjölfarið. Ekki er vitað hvar hin konan keypti sína orkídeu.

Kvikindið er ekki heðfbundinn útliti heldur líkist það járnsmið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×