Telja ríkið útrýma samkeppni í lyfjum 30. júlí 2010 06:30 Mjög flókið og tímafrekt getur verið að stofna lyfjafyrirtæki og koma nýjum lyfjum á markað. Einkaaðilar telja að opinber lyfjaverslun væri síst til þess fallin að tryggja samkeppni á markaðnum.Fréttablaðið/pjetur
Frumtök, samtök sautján lyfjafyrirtækja sem starfa á Íslandi, mótmæla því harðlega að Lyfjaverslun Íslands verði endurvakin, eins og greint var frá í Fréttablaðinu í vikunni að stjórnvöld hefðu til skoðunar. Í ályktun frá samtökunum segir að allar aðgerðir sem heilbrigðisyfirvöld hafi ráðist í undanfarin misseri hafi dregið úr og brotið niður samkeppni á markaðnum. „Í gegnum breytta greiðsluþátttöku og þar sem bara ódýrustu lyfin eru niðurgreidd hefur samkeppni nánast verið útrýmt," segir í ályktuninni. Þetta er útskýrt með því að stefna heilbrigðisyfirvalda sé sú að beina neyslu lyfja úr frumlyfjum í samheitalyf, eða eftirlíkingar af skyldum lyfjum. Erlend fyrirtæki sjái því enga ástæðu til að taka þátt í rannsóknum á markaði sem sé andsnúinn nýrri lyfjum. Þá segir í ályktuninni að sérstakt sé að umræða um að endurreisa Lyfjaverslun ríkisins fari af stað við þessar aðstæður. „Heilbrigðisráðuneytið gjörbyltir greiðsluþátttökukerfinu svo hægt sé að leggja meiri áherslu á ódýrustu lyfin eins og samheitalyf og þetta er gert á kostnað nauðsynlegra frumlyfja. Ef svo kemur í ljós að samheitalyfin eru dýrari hér á landi en á Norðurlöndum er lausnin að stofna Lyfjaverslun ríkisins," segja samtökin. „Endurvakning Lyfjaverslunar ríkisins yrði ekkert annað en aðgerð til að stemma stigu við ástandi sem komið hefur verið á, leynt og ljóst, af heilbrigðisyfirvöldum sjálfum."stigur@frettabladid.is
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira