Það verður aldrei annar Paul Scholes hjá Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2010 17:00 Paul Scholes fagnar sigurmarki sínu um helgina. Mynd/AFP
Darren Fletcher er ánægður með Paul Scholes, félaga sinn á miðju Manchester United, en segir þó að Scholes fái aldrei þá viðurkenningu sem hann á skilið vegna þess að hann forðist sviðsljósið. Scholes hefur þó verið í sviðsljósinu síðustu daga eftir að hann tryggði United dýrmætan sigur í uppbótartíma á móti nágrönnunum í Manchester City um síðustu helgi. „Við munum aldrei sjá annan Paul Scholes hjá Manchester United. Hann er goðsögn og viðmiðun fyrir aðra knattspyrnumenn," sagði Darren Fletcher við blaðamenn. „Hann hefur ekki áhuga á lífi nútíma fótboltamannsins utan vallar en hann er heimsklassa leikmaður inn á vellinum," sagði Fletcher. „Hann hefur aldrei fengið þá viðurkenningu sem hann á skilið fyrir utan Manchester United af því að hann sækir ekki í sviðsljós fjölmiðlanna. Hann veitir aldrei viðtöl eða gefur kost á sér í svoleiðis hluti," segir Darren Fletcher. „Ég trúi því ekki að hann hafi aldrei verið tilnefndur til Alþjóðlegra verðlauna því hann var að skora 20 mörk á tímabili af miðjunni þegar hann var á hátindi ferilsins," segir Darren Fletcher. „Á laugardaginn var hann besti maður vallarins fyrir utan að skora markið í lokin. Hann stjórnaði algjörlega tempóinu í leiknum. Ef ég get spilað eitthvað í líkingu við þetta þegar ég verð 35 ára þá yrði ég himinlifandi með það," sagði Darren Fletcher. „Það býst enginn við því að hann sé að hlaupa vítateigana á milli allan leikinn. Núna velur hann sér tímann fyrir hlaupin sín," sagði Fletcher um félaga sinn Paul Scholes.
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 23-24 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Mikil trú á íslenskum sigri meðal stuðningsmanna Íslands Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Handbolti City fékk skell í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Sjá meira