Viðbúnaðarstig hækkað í Danmörku 11. september 2010 12:13
Lögreglan í Danmörku hefur hækkað hryðjuverkaviðbúnaðarstig vegna sprengingarinnar í miðborg Kaupmannahafnar í gær. Ýmislegt hefur komið fram í rannsókn lögreglu sem bendir til þess að um misheppnaða hryðjuverkaárás hafi verið að ræða. Lögreglan hefur í haldi mann sem hún telur ábyrgan fyrir sprengingunni á Hótel Jörgensen, sem er skammt frá Nörreport lestarstöðinni, í gær. Hann flúði alblóðugur af hótelinu skömmu eftir að sprengjan sprakk en fannst skömmu síðar Örstedparken sem er hinum megin við götuna frá hótelinu. Hann var ekki handtekinn fyrr en sprengjuleitarvélmenni og sérþjálfaðir sprengjuleitarmenn höfðu gengið úr skugga um að maðurinn væri ekki með sprengju á sér.Neitar að svara spurningum Hann var fluttur á Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn þar sem hann liggur nú. Lögregla hefur enn ekki gefið út nafn hans né þjóðerni og segist enn vera að vinna að því að fá það staðfest. Vitað er að hann hafði dvalið undir tveimur mismunandi nöfnum á hótelinu þar sem sprengjan sprakk undanfarna dag. Lögreglan segir þó að hann sé af norður-afrískum og evrópskum uppruna og tali góða ensku. Hann hefur hins vegar neitað að svara spurningum lögreglu. Lögreglan fínkemdi hótelið í gær í leit að sprengjum eða sprengiefni en fann ekki. Hún fann hins vegar skotvopn sem talið er tilheyra hinum grunaða. Fyrirskipað að vera á varðbergi Yfirmaður dönsku leynilögreglunnar, PET, segir að það sé of snemmt að segja til með vissu hvort um hryðjuverkaárás sé að ræða eða eitthvað annað. Þá sé enn heldur ekki hægt að útiloka að hinn grunaði eigi sér samstarfsmann eða menn sem gangi enn lausir. Það sé hins vegar komin fram gögn sem bendi til þess um misheppnaða hryðjuverkaáras sé að ræða. Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkarárása sem til staðar er í Danmörku var því hækkað þannig nú hefur öllum lögregluembættum landsins verið fyrirskipað að vera á varðbergi.
Tengdar fréttir Önnur sprenging í Kaupmannahöfn Danskir fjölmiðlar segja að fyrir stundu hafi heyrst sprenging í Örstedsparket í Kaupmannahöfn þar sem lögreglan situr um mann sem talinn er hafa ætlað að gera sjálfsmorðssprengjuárás í borginni. 10. september 2010 16:55 Neitar að svara spurningum Maðurinn sem lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær vegna sprengjutilræðis á hóteli í miðborginni neitar svara spurningum í yfirheyrslum. Lögreglan hefur því ekki enn ekki fundið út hvort hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk eða ekki. Hann liggur á ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn en hann særðist þegar sprengjan sprakk á hótel Jörgensen, skammt frá Nörreport, í gær. Honum er lýst sem enskumælandi, með Miðjarðarhafshreim. 11. september 2010 09:48 Sjálfsmorðssprengjuárás í Kaupmannahöfn Karlmaður reyndi fyrir stundu að gera sjálfsmorðssprengjuárás á hóteli við Ísraelstorg í Kaupmannahöfn. 10. september 2010 14:31 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira
Önnur sprenging í Kaupmannahöfn Danskir fjölmiðlar segja að fyrir stundu hafi heyrst sprenging í Örstedsparket í Kaupmannahöfn þar sem lögreglan situr um mann sem talinn er hafa ætlað að gera sjálfsmorðssprengjuárás í borginni. 10. september 2010 16:55
Neitar að svara spurningum Maðurinn sem lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær vegna sprengjutilræðis á hóteli í miðborginni neitar svara spurningum í yfirheyrslum. Lögreglan hefur því ekki enn ekki fundið út hvort hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk eða ekki. Hann liggur á ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn en hann særðist þegar sprengjan sprakk á hótel Jörgensen, skammt frá Nörreport, í gær. Honum er lýst sem enskumælandi, með Miðjarðarhafshreim. 11. september 2010 09:48
Sjálfsmorðssprengjuárás í Kaupmannahöfn Karlmaður reyndi fyrir stundu að gera sjálfsmorðssprengjuárás á hóteli við Ísraelstorg í Kaupmannahöfn. 10. september 2010 14:31