Erlent

Kosið í Eþíópíu

Frá borginni Mojo suður af höfuðborginni Addis Ababa. Kosningarnar hafa farið friðsamlega fram það sem af er degi.
Frá borginni Mojo suður af höfuðborginni Addis Ababa. Kosningarnar hafa farið friðsamlega fram það sem af er degi. Mynd/AP
Gengið verður til kosninga í Eþíópíu í dag í fyrsta sinn síðan 2005, en síðustu kosningar enduðu með blóðsúthellingum. Kosningarnar hafa farið friðsamlega fram það sem af er degi.

Ríkjandi stjórnvöld hafa lofað gagnsæi við framkvæmd kosninganna og gera ráð fyrir stórsigri í kosningunum. Stjórnarandstaðan hefur þrátt fyrir það kvartað undan því að fá ekki fulltrúa á kjörstöðum. Forsætisráðherrann hefur sakað stjórnarandstöðuna um að ætla að kynda undir ofbeldi en því hefur stjórnarandstaðan neitað.

Í Eþíópíu eru 32 milljónir kjósenda, en þingsætin eru 547. Kjörsókn mun vera með mesta móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×