Hannes: Mjög rólegur dagur hjá mér Kristinn Páll Teitsson skrifar 27. júní 2010 19:26
Hannes Þór Halldórsson, markvörður Fram, var svekktur að hafa misst af tækifæri að ná toppsætinu í deildinni eftir 0-0 jafntefli Fram og Hauka. Hann er þó fullviss að þeir fengju annan möguleika á að ná því. „Við ætluðum okkur þrjú stig og erum svekktir að hafa ekki náð þeim, það var eitthvað þungt yfir okkur en ég kann ekki skýringu á því. Ég er hinsvegar sannfærður um að það kemur annað tækifæri að komast á toppinn, ég er sannfærður um það. Hinsvegar ef lið ætlar sér að vera í toppbaráttu verða þau að klára svona leiki. " Lítið var um marktækifæri í leiknum og þurfti Hannes ekki að gera mikið í leiknum. Það kom hinsvegar ágætis kafli undir lokin og mátti minnstu muna að annaðhvort liðið stæli sigrinum. „Þetta var mjög rólegur dagur hjá mér, það var hinsvegar ekki dagsplanið að sitja og verjast. Við ætluðum að keyra á þá en um leið og leikurinn er flautaður á er eins og allt annað lið sé mætt í leikinn en labbaði inn á völlinn. Ég hafði hinsvegar alltaf trú á því að við myndum setja mark og finnst ótrúlegt að við skyldum ekki skora á nítíu mínútum, Haukarnir hinsvegar börðust frábærlega og eiga stigið skilið." Næsti leikur Fram er Reykjavíkurslagur af bestu gerð en þá fá Fram Valsara í heimsókn. „Við ætluðum að vinna alla heimaleiki en það kom smá bakslag í það, við komum hinsvegar bara betur stemmdir vonandi í næsta leik. Vonandi mæta menn ferskir, tökum góða viku í æfingar og mætum í hörku baráttu á mánudaginn. Það verður toppslagur af bestu gerð og það er gaman að Fram og Valur séu að berjast um toppsætið aftur," sagði Hannes.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Sjá meira