Kvóti á sumargotssíld aukinn um 7.000 tonn 7. janúar 2010 11:17
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að auka veiðar úr stofni íslensku sumargotssíldarinnar um 7 þúsund tonn.Í tilkynningu segir að þetta magn kemur til viðbótar þeim 40.000 tonnum sem þegar höfðu verið ákveðin. Tiltekið er í reglugerðinni að veiðar á þessum 7 þúsund tonna viðbótarúthlutun skuli skipulagðar í samvinnu við Hafrannsóknarstofnunina í því skyni að kanna, með sýnatökum, ástand síldarstofnsins.Þannig þurfa veiðiskip að haga sýnatökum í samráði við Hafrannsóknastofnunina og með þeim hætti sem stofnunin ákveður. Samkvæmt síðustu fréttum er eitt skip haldið til veiða og vonir manna standa til þess að enn megi veiða síldina til manneldis.Með ákvörðuðum heildarafla upp á 47.000 tonn verður veiðin á yfirstandandi fiskveiðiári u.þ.b. 35% af meðaltali afla fiskveiðiáranna 2005/2006 - 2007/2008, eða vertíðarnar áður en sýkingar varð vart í stofninum. Segja má að þessi veiði sé langt umfram væntingar, en á tímabili í fyrra voru mestar líkur á að engin veiði yrði heimiluð.Vakin er hér athygli á þeirri ákvörðun Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, frá því í haust, að nú er skylt að færa allan afskurð sem fellur til við vinnslu síldarinnar um borð í fullvinnsluskipum í land. Þá ákvað ráðherra einnig breytingu á reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld þar sem heimild til að sleppa niður lifandi síld í nót var afturkölluð.Það er mat ráðherra að vel hafi tekist til með þessar breytingar og margt bendi til að reglurnar verði látnar gilda í framtíðinni um veiðar af þessu tagi. Hér er tvímælalaust verið að stíga ákveðið skref til þess að bæta umgengni okkar við sjávarauðlindina.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Margrét fær ekki að áfrýja dómnum til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu Sjá meira