Femínstar krefjast að erótískum vef verði lokað 7. janúar 2010 21:22 Úr myndskeiði af vefnum sem femínistar fara fram á að verði lokað.
Femínistafélag Íslands krefst þess að íslenskum erótískum samskiptavef verði lokað þar sem ljóst þykir að hann ætli að stuðla að vændi íslenskra kvenna. Þá gagnrýnir félagið harðlega frétt um vefinn sem birtist á Vísi í gær. Vefurinn Purplerabbit.is auglýsir eftir ungum íslenskum konum til þess að sitja fyrir á djörfum ljósmyndum eða myndskeiðum. Á vefnum segir meðal annars: „Kanínan er stökkpallur fyrir djarfar fyrirsætur, leikara og leikkonur sem vilja kynna sig fyrir umheiminum eða halda nafni sínu á lofti og birta sýnishorn afurða sinna, kynnast væntanlegum viðskiptavinum sínum og selja beint til þeirra og jafnvel framleiða efni fyrir valda (viðskipta)vini sína eftir pöntun." „Hér er klárlega um vændistengda starfsemi að ræða þrátt fyrir yfirlýsingu vefsins um annað," segir í yfirlýsingu frá Femínistafélaginu. Félagið bendir á að í löndum sem hafa liðið efnahagslegt afhroð hafi neyð kvenna leitt til þess að vændi og önnur vændistengd starfsemi hafi aukist til muna. „Við teljum ljóst að með fréttinni eða öllu heldur auglýsingunni fyrir vefinn ætli visir.is sér að stuðla að vændi íslenskra kvenna." Jafnframt fordæmis Femínistafélagið að samskiptavefurinn fái að starfa óáreittur og krefst þess að yfirvöld loki vefnum og stöðvi starfsemina.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Sjá meira