Nazistar undirbjuggu sprengjuárás á New York Óli Tynes skrifar 12. febrúar 2010 15:31 Eldflaugavélin var mikið tækniundur. Mynd/History Channel
Árið 1944 voru Þjóðverjar við það að tapa stríðinu. Engu að síður var í fullum gangi undirbúningur undir sprengjuárás á Bandaríkin. Til þess átti að nota nýja flugvélategund sem á þeim tíma hefur verið hreint tækniundur. Hún var tæpir fjörutíu metrar að lengd sem er vel rúmlega hálfur turninn á Hallgrímskirkju. Vélin var knúin eldflaugahreyflum og bar 90 tonn af eldsneyti. Það átti að að setja hana á sleða og skjóta henni upp af gríðarlöngum rampi eins og V-1 flugskeytunum sem skotið var á Bretland. Til þess að knýja sleðann átti að nota fimmtán eldflaugahreyfla af V-2 eldflaugum. Það nægði til þess að koma sleðanum í tæplega tuttuguþúsund kílómetra hraða. Hálfgert geimfar Við endann á rampinum átti vélin að losna frá sleðanum og ræsta eigin mótora. Hún átti svo að klifra með sextíu gráðu halla upp í lága braut um jörðu eða 200 kílómetra hæð. Þetta var því eiginlega hálfgert geimfar. Á þessari braut átti hún svo að svífa til Bandaríkjanna á sexþúsund kílómetra hraða. Þar átti að sleppa einni sprengju í nokkur hundruð kílómetra fjarlægð frá New York sem var skotmarkið. Svo yrði vélinni snúið heim aftur. Í sprengjunni átti að vera geislavirkur sandur. Ætlunin var því ekki að eyðileggja sem mest, heldur mynda þrýsting til þess að fá fram vopnahlé. Stríðinu lauk þó áður en tókst að smíða þessa framtíðarsýn Þjóðverja. Einn þeirra sem unnu að þessu var Werner von Braun sem síðar stýrði eldflaugaþróun Bandaríkjanna. (Heimild: History Channel)
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Sjá meira