Útgöngubannið í Bangkok framlengt 20. maí 2010 08:04 Frá höfuðborginni Bangkok. Óvíst er hversu margir hafa látið lífið síðastliðinn sólarhring en talið er að að allt að 14 hafi fallið í átökunum. Mynd/AP
Taílensk yfirvöld hafa framlengt útgöngubannið í Bangkok um þrjá sólarhringa. Skothvellir heyrðust í nótt og enn loga eldar í höfuðborginni. Til harðra átaka kom í fyrrinótt í miðborg Bangkok og ákváðu leiðtogar stjórnarandstöðunnar í framhaldinu að gefa sig á vald hermanna og hvöttu mótmælendur til að hætta aðgerðum sínum. Það varð til þess að miklar óeirðir brutust út í höfuðborginni í gær og skömmu síðar var lokað fyrir útvarps- og sjónvarpsútsendingar. Kveikt var í á þriðja tug bygginga, þar á meðal kauphöll borgarinnar og nokkrum bönkum. Óeirðir breiddust einnig út til norður- og norðausturhluta landsins. Aðgerðir stjórnarandstöðunnar hafa staðið yfir í um tvo mánuði en hún krefst þess að þing landsins verði leyst upp og að boðað verði til kosninga. Mótmælendurnir eru margir hverjir stuðningsmenn Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra, sem hrakinn var frá völdum fyrir fjórum árum. Óvíst er hversu margir hafa látið lífið síðastliðinn sólarhring en talið er að að allt að 14 hafi fallið í átökunum, þar á meðal ítalskur fréttamaður. Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra Taílands, lýsti í gær yfir útgöngubanni í allri borginni sem átti að gilda þangað til í morgun en það hefur verið framlengt um þrjá daga. Þá er einnig útgöngubann í gildi í 22 héruðum úti á landi.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira