Enski boltinn

Er Ferguson á eftir liðsfélaga Arnórs?

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Alex Ferguson
Alex Ferguson GettyImages
Manchester United eru sagðir fylgjast grannt með ungum finnskum markverði að nafni Lukas Hradecky sem leikur með danska úrsvaldeildarliðinu Esbjerg. Með liðinu leikur einnig íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Smárason.

Hinn tvítugi Hradecky fór á reynslu til United í sumar og hefur líklega náð auga Alex Ferguson, knattspyrnustjóra United sem leitar að markvörðum um þessar mundir.

„Mér var sagt að United væri að fylgjast með mér þegar ég spilaði með Finnlandi gegn Spáni. Það hljómar óraunverulegt að þeir séu að fylgjast með mér," sagði Hradecky. Líkur eru á að markverðinum unga verði boðinn samningur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×