Enski boltinn

Andy Cole: Beckham kemur til baka

Elvar Geir Magnússon skrifar
Cole og Beckham á góðri stundu fyrir tíu árum.
Cole og Beckham á góðri stundu fyrir tíu árum.

Andy Cole, fyrrum samherji David Beckham með Manchester United og enska landsliðinu, segist sannfærður um að Beckham komi sterkur til baka eftir meiðslin.

Hásin í vinstri fæti Beckham virðist hafa rifnað í leik AC Milan og Chievo í gær og sumir hafa talið að meiðslin gætu bundið enda á feril hins 34 ára leikmanns.

„Þetta eru hræðilegar fréttir fyrir David, hann þráði að fara með á heimsmeistaramótið. Það er mjög erfitt fyrir hann að sætta sig við þetta," sagði Cole.

„Þetta eru mjög slæm meiðsli. Sársaukinn er mikill og endurhæfingin erfið. En ég þekki David og veit að hann kemur sterkur til baka. Hann vill líklega ekki enda ferilinn á þennan hátt. Hann mun gera allt til að verða klár í slaginn aftur."

Beckham verður frá í að minnsta kosti fjóra mánuði en hann fer í aðgerð í Finnlandi í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×