Trúboðinn á Haítí laus úr haldi 18. maí 2010 08:13 Laura Silsby var fundin sek um að hafa ætlað 33 börnum frá Haítí eftir jarðskjálftann í janúar. Hún er laus úr haldi. Mynd/AP
Bandarískur trúboði hefur verið fundinn sekur um að hafa ætlað að smygla 33 börnum frá Haítí eftir jarðskjálftann mikla fyrr á árinu. Tíu trúboðar frá Idaho í Bandaríkjunum voru handteknir við landamærin að Dóminíska lýðveldinu 17 dögum eftir jarðskjálftann á Haítí sem kostaði yfir 230 þúsund íbúa landsins lífið. Trúboðanir voru með 33 haítísk börn og voru sakaðir um að hafa rænt þeim. Sjálfir sögðust þeir hafa ætlað að flytja börnin á munaðarleysingahæli sem þeir væru að koma upp í Dóminíska lýðveldinu. Bandaríkjamennirnir höfðu hins vegar engin skjöl meðferðis sem heimiluðu þeim að flytja börnin úr landi. Síðar kom í ljós að minnsta kosti tvö af hverjum þremur börnum úr hópnum áttu foreldra á lífi. Búist var að trúboðarnir yrðu hverjir fyrir sig ákærðir fyrir bæði mannrán og aðild að glæp en einungis Laura Silsby, leiðtogi hópsins, var ákærð. Hinum nýju var sleppt úr haldi um miðjan febrúar og yfirgáfu þau landið í framhaldinu. Í fyrstu var Silsby ákærð fyrir mannrán en síðar var ákærunni breytt og henni gert að sök að hafa ætlað að smygla börnunum úr landi. Hún hlaut í gær þriggja mánaða og átta daga fangelsisdóm en það er sá tími sem hún hefur setið í varðhaldi eftir að upp komst um málið. Eftir að dómari kvað upp úrskurðinn sótti Silsby eigur sínar í fangaklefa og hélt því næst rakleiðis á flugvöllinn í höfuðborginni Port-au-Prince. Hún þakkaði Guði fyrir að vera laus úr haldi.
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Fleiri fréttir Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Sjá meira