Innlent

Útsvarstekjur á Vestfjörðum hækkuðu við fall krónunnar

Útsvarstekjur í Vesturbyggð fóru úr 245 milljónum í 281 milljón milli ára.
fréttablaðið/vilhelm
Útsvarstekjur í Vesturbyggð fóru úr 245 milljónum í 281 milljón milli ára. fréttablaðið/vilhelm
Útsvarstekjur sveitarfélaga á Vestfjörðum hækkuðu um 15,1 prósent á milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram í nýjum tölum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Tekjuaukning sveitarfélaga á landsvísu var 2,6 prósent.

Brúttótekjur sveitarfélaga á Vestfjörðum árið 2008 voru 1.954 milljarðar króna en voru 2.249 milljarðar í fyrra. Níu af tíu sveitarfélögum á Vestfjörðum bættu við sig en Bæjarhreppur var undantekningin á tekjuaukningunni milli ára.

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir að tekjuaukning sveitarfélaganna skýrist að langmestu leyti með bættri afkomu sjávarútvegsins vegna gengisþróunar krónunnar. Halldór segir að þegar horft er til Vestfjarða í samanburði við landið í heild verði að hafa hugfast að þenslubylgja síðustu ára fór að verulegu leyti fram hjá Vestfjörðum. Samdrátturinn var því ekki mikill við hrunið, þegar á allt er litið. „Við erum búin að vera í gíslingu sterkrar krónu mjög lengi en nú hefur þetta snúist við.“ Þessu til viðbótar koma áhrif hækkunar á útsvarshlutfalli og skatttekjur af útgreiðslu séreignasparnaðar úr lífeyrissjóðum. Halldór segir að þrátt fyrir tekjuaukninguna þurfi sveitarfélögin eftir sem áður að halda verulega aftur af útgjöldum sínum.

Mikilvægi sjávarútvegsins í þessari mynd sést greinilega þegar afkoma sveitarfélaga eins og Borgarbyggðar og Fljótsdalshéraðs er skoðuð. Útsvarstekjur beggja sveitarfélaganna dragast saman á tímabilinu. Lifibrauð þeirra hefur ekki síst verið umsvif verktakafyrirtækja sem hafa mörg hver fengið þungan skell.

Eins og áður sagði var tekjuaukning Bolungarvíkurkaupstaðar 39 prósent. Tekjurnar voru 248 milljónir króna árið 2008 en voru 345 milljónir í fyrra. Elías Jónatansson bæjarstjóri gerði þessa niðurstöðu að umtalsefni í stefnuræðu sinni með fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2010 og segir aukninguna skýrast af þrennu. Auknum umsvifum í sjávarútvegi, en afli sem landað var í Bolungarvíkurhöfn var um fimmtán prósent meiri en árið áður. Eins stafi aukningin af umsvifum við jarðgöng og snjóflóðavarnir, auk þess sem lagt var á tíu prósenta álag á útsvar í Bolungarvík. - shá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×