Innlent

Engar veiðar að svo stöddu

Hér kemur Suðurey inn til löndunar í Vestmannaeyjum á loðnuvertíðinni 2007. fréttablaðið/Óskar
Hér kemur Suðurey inn til löndunar í Vestmannaeyjum á loðnuvertíðinni 2007. fréttablaðið/Óskar
Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuveiðar verði ekki hafnar að svo stöddu þar sem ekki mælist nægjanlegt magn til að gefa út upphafskvóta.

Janúarmælingu Hafrannsóknastofnunar á loðnustofninum lauk á mánudag en skip stofnunarinnar hafa verið við loðnumælingar frá 5. janúar.

Aðstæður til mælinga hafa verið góðar frá því að skipin fóru frá Reykjavík, að undanskildu því að hafís hamlaði leit á töluvert stóru svæði vestur og norður af Vestfjörðum, sem kann að hafa haft áhrif á niðurstöður. Útreikningar sýna að alls mældust 360 þúsund tonn af loðnu, þar af mældist hrygningarstofninn um 355 þúsund tonn.

Út af Austfjörðum mældust 180 þúsund tonn, allt hrygningarloðna. Út af Norðausturlandi mældust tæp 120 þúsund tonn, mest hrygningarloðna. Út af vestanverðu Norðurlandi mældust 61 þúsund tonn, þar af 56 þúsund tonn af hrygningarloðnu.

Aflaregla við loðnuveiðar byggir á að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar. Ofangreindar mælingar á stærð hrygningarstofnsins eru undir því magni.

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson verður áfram við athuganir og mælingar á loðnustofninum ásamt leitarskipi sem væntanlegt var á miðin út af Norðurlandi í gær, miðvikudag. - shá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×