Við erum í aðalatriðum sama þjóðin 13. mars 2010 04:00 Mohammed Nasheed og Ólafur Ragnar Grímsson hafa ákveðið að ferðast saman um heiminn með þann boðskap til þróunarlanda að þau geti haldið áfram að þróast án þess að eyðileggja jörðina. Fréttablaðið/GVA „
Við verðum að finna lausnir á loftslagsvandanum áður en við lendum í frjálsu falli,“ segir Mohammed Nasheed, forseti Maldíveyja, sem staddur er í stuttri heimsókn hér á landi. Baráttan gegn breytingum á loftslagi jarðar er sérlega brýn á Maldíveyjum, sem eru skammt suður af Indlandi, því hæsti staður þeirra er aðeins 2,4 metrum yfir sjávarmáli. Þær myndu því sökkva að stórum hluta ef yfirborð sjávar hækkar verulega. „Áhrifin yrðu þau sömu og hér á landi,“ sagði hann á Bessastöðum í gær, og benti á að sjórinn myndi flæða upp að Bessastöðum ef yfirborð hans hækkar. „Það er nákvæmlega sama staðan heima hjá mér, sjórinn myndi ná upp að húsinu mínu,“ segir hann. Nasheed hefur ferðast víða um heim til að leggja áherslu á mikilvægi þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, og segist hlakka til að fá Íslendinga í lið með sér. Hann segist í þessari heimsókn hafa áttað sig á því að Íslendingar og íbúar Maldíveyja búa við mjög svipaðar aðstæður. „Við erum í aðalatriðum sama þjóðin,“ segir hann. „Við erum 350 þúsund, rétt eins og þið, og dreifumst niður á lítil byggðarlög, þótt hjá okkur séu þau á litlum eyjum. Atvinnuhættirnir eru svipaði, fiskveiðar og ferðaþjónusta.“ - gb
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira