Segja Helguvík fara á fullt í sumar 24. febrúar 2010 19:24 Helguvík.
Bjartsýni ríkir nú á Suðurnesjum um að álversframkvæmdir í Helguvík komist brátt á fulla ferð en eigendur Norðuráls segja það gerast í kringum mitt ár.Þau grindin séu komin á fyrstu kerskálana hafa framkvæmdir í Helguvík í raun verið í hægagangi allt frá því þær hófust haustið 2008. Aðeins um fimmtíu manns starfa að smíðinni um þessar mundir.Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr þá byggja áætlanir um endurreisnina á því að það takist að koma framkvæmdum þar á fulla ferð. Aðalforstjóri Century Aluminum lýsti því yfir í dag að hann tryði því að framkvæmdir færu á fullt um mitt ár. En er það raunhæft?Norðurál hefur gott sem tryggt sér fjármögnun en framvindan ræðst nú af íslensku orkufyrirtækjunum. HS Orka vinnur að því að afla virkjanaleyfis til stækkunar Reykjanesvirkjunar og þarf síðan að tryggja fjármögnun.Alexander Guðmundsson, stjórnarformaður HS Orku, segir þetta allt saman í réttum farvegi. Mál taki þó lengri tíma en þau gerðu fyrir einhverjum misserum, en þetta sé allt saman að mjakast í rétta átt, og telur raunhæft að alvörustartið verði um mitt ár.Sveitarfélögin á Suðurnesjum eiga mikið undir. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, kveðst hafa unnið að undirbúningi þessa verkefnis í fimm ár og fylgst náið með hverju skrefi. Hann trúi því sannarlega að það verði komið af stað á miðju ári.Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, segir að það yrði algert reiðarslag, ekki bara fyrir þetta svæði, heldur allt landið, ef enn eitt skiptið ætti að segja fólkinu að þessar framkvæmdir væru að stöðvast vegna þess að við sjálf værum að stöðva þær. Eina sem þetta land þarfnaðist nú væri að afla gjaldeyris og þessar verksmiðjur biðu eftir því.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Fleiri fréttir Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Sjá meira