Missti hendur og fætur en hleypur hálft maraþon á morgun 20. ágúst 2010 20:07 „Ég er ekki í mjög góðu formi eins og er svo ég hleyp bara til skemmtunar,“ segir Skotinn Jamie Andrew.
Jamie Andrew missti bæði hendur og fætur eftir hræðilegt slys fyrir ellefu árum en ætlar að hlaupa hálft maraþon á morgun. Hann hleypur á fótum frá Össuri en reiknar ekki með að vera meðal fyrstu manna. Sex afreksmenn frá Bretlandi eru komnir hingað til lands í boði Össurar, en þeir nota allir stoðtæki frá fyrirtækinu. Einn þeirra er Skotinn Jamie Andrew sem missti bæði hendur og fætur eftir að hafa verið fastur í frönsku Ölpunum í fimm daga.Dó úr ofkælingu „Það brast á óveður svo við félagi minn vorum fastir á fjallstindi í fimm sólarhringa. Frostið fór niður í 30 stig og vindhraðinn var allt að 36 metrar á sekúndu. Þegar okkur var loks bjargað eftir fimm daga var það um seinan fyrir félaga minn. Hann dó úr ofkælingu og viku síðar þurfti að fjarlægja hendur mínar og fætur," segir Jamie. Eftir þessa miklu þrekraun ákvað Jamie hinsvegar að halda áfram því sem hann hefur unun af, og hann kvartar ekki í dag. „Ég vissi strax að ég væri heppinn að sleppa lifandi úr þessum háska og að ég yrði að nýta það sem ég hef. Ég ákvað því að reyna að lifa lífinu til fulls og ég var hissa á því hvað ég gat gert mikið. Ég hef ekki undan neinu að kvarta og er ánægður með tilveruna," segir Jamie. Alls enginn keppnismaður Jamie gerir lítið úr hlaupaafrekum sínum en hann er mikill íþróttamaður og eru fjallaferðir hans aðal áhugamál. Hann hefur hlaupið heilt maraþon en ætlar að láta sér nægja hálft á morgun. En á hvaða sæti stefnir hann? „Ég er alls enginn keppnismaður. Ég er ekki í mjög góðu formi eins og er svo ég hleyp bara til skemmtunar. Ég verð einhvers staðar aftarlega," segir Jamie.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira