Innlent

Var handtekin á leiðinni með börnin í öskudagsgleði

Helga Arnardóttir skrifar

Fjögurra barna einstæð móðir var handtekin fyrir utan Kringluna í morgun þar sem hún var að fylgja börnum sínum á Öskudagsgleði. Hún hafði ekki sinnt boðun sýslumanns um fjárnám. Hún neyddist til að skilja tvær dætur sínar sínar, sjö og tólf ára, eftir, þar sem lögregla flutti hana á brott með valdi.

Konan sem um ræðir heitir Margrét María Jóhannsdóttir. Hún hefur um árabil átt í forræðis- og umgengnisdeilu við barnsföður sinn, sem hún segir börnin ekki vilja hitta.

Hún hefur verið sektuð fyrir þetta og nema sektirnar nú milljónum króna. Vegna þessa var hún boðuð til sýslumanns í byrjun mánaðarins þar sem gera átti hjá henni fjárnám. Hún mætti ekki.

Í dag, ætlaði hún með börnin sín grímuklædd í Kringluna á öskudagsgleði.

"Ég fer með þær niður eftir, er fyrir utan Kringluna við aðalinnganginn og hleypi þeim út. Ég ætlaði svo að leggja bílnum en þá er lagt fyrir framan mig og aftan mig þannig ég kemst ekki neitt. Hurðin er opnuð á bílnum mínum og mér tilkynnt um handtökuskipun á hendur mér fyrir að mæta ekki í fjárnám.

Dætur mínar sjö ára og tólf ára voru ekki með síma og komnar inn í Kringluna. Ég náði ekki í þær og gat ekki látið þær vita af mér þannig þær voru einar. Ég mátti ekki fara og láta þær vita heldur bara fylgja lögreglunni til sýslumanns sem ég og gerði," segir Margrét.

Margrét fékk að hafa samband við ættingja sem fór í Kringluna og tókst að finna börnin eftir leit.

Lögmaður Margrétar Maríu kannast ekki við aðra eins hörku við innheimtu. Fjárnámið sé hins vegar makalaust, þar sem Hæstiréttur hafi þegar skorið úr um að sektirnar eigi ekki við.

Lögfræðingurinn segir auk þess sæta furðu að sýslumaður sýslumaður virðist ekki ætla virða úrskurð héraðsdóms og hæstaréttar frá í janúar þar sem kveðið var upp úr að ósannað sé að Margrét hafi tálmað umgengni föður við börn sín frá fyrra hausti og því eigi dagsektir ekki við.

Þá bendir hún á að dómkvaddur matsmaður hafi nýlega skilað af sér skýrslu þar sem hann telur að þvinguð umgengni eigi ekki að fara fram og geti verið beinlínis skaðleg. Sýslumaður haldi hins vegar áfram að innheimta dagsektir og láti handtaka móðurina.

Þau svör fengust hjá lögreglu að ekki væri hægt að svara fyrir þetta mál að svo stöddu en lögreglu bæri að fara eftir handtökuskipunum sýslumanns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×