Var handtekin á leiðinni með börnin í öskudagsgleði Helga Arnardóttir skrifar 17. febrúar 2010 18:28
Fjögurra barna einstæð móðir var handtekin fyrir utan Kringluna í morgun þar sem hún var að fylgja börnum sínum á Öskudagsgleði. Hún hafði ekki sinnt boðun sýslumanns um fjárnám. Hún neyddist til að skilja tvær dætur sínar sínar, sjö og tólf ára, eftir, þar sem lögregla flutti hana á brott með valdi. Konan sem um ræðir heitir Margrét María Jóhannsdóttir. Hún hefur um árabil átt í forræðis- og umgengnisdeilu við barnsföður sinn, sem hún segir börnin ekki vilja hitta. Hún hefur verið sektuð fyrir þetta og nema sektirnar nú milljónum króna. Vegna þessa var hún boðuð til sýslumanns í byrjun mánaðarins þar sem gera átti hjá henni fjárnám. Hún mætti ekki. Í dag, ætlaði hún með börnin sín grímuklædd í Kringluna á öskudagsgleði. "Ég fer með þær niður eftir, er fyrir utan Kringluna við aðalinnganginn og hleypi þeim út. Ég ætlaði svo að leggja bílnum en þá er lagt fyrir framan mig og aftan mig þannig ég kemst ekki neitt. Hurðin er opnuð á bílnum mínum og mér tilkynnt um handtökuskipun á hendur mér fyrir að mæta ekki í fjárnám. Dætur mínar sjö ára og tólf ára voru ekki með síma og komnar inn í Kringluna. Ég náði ekki í þær og gat ekki látið þær vita af mér þannig þær voru einar. Ég mátti ekki fara og láta þær vita heldur bara fylgja lögreglunni til sýslumanns sem ég og gerði," segir Margrét. Margrét fékk að hafa samband við ættingja sem fór í Kringluna og tókst að finna börnin eftir leit. Lögmaður Margrétar Maríu kannast ekki við aðra eins hörku við innheimtu. Fjárnámið sé hins vegar makalaust, þar sem Hæstiréttur hafi þegar skorið úr um að sektirnar eigi ekki við. Lögfræðingurinn segir auk þess sæta furðu að sýslumaður sýslumaður virðist ekki ætla virða úrskurð héraðsdóms og hæstaréttar frá í janúar þar sem kveðið var upp úr að ósannað sé að Margrét hafi tálmað umgengni föður við börn sín frá fyrra hausti og því eigi dagsektir ekki við. Þá bendir hún á að dómkvaddur matsmaður hafi nýlega skilað af sér skýrslu þar sem hann telur að þvinguð umgengni eigi ekki að fara fram og geti verið beinlínis skaðleg. Sýslumaður haldi hins vegar áfram að innheimta dagsektir og láti handtaka móðurina. Þau svör fengust hjá lögreglu að ekki væri hægt að svara fyrir þetta mál að svo stöddu en lögreglu bæri að fara eftir handtökuskipunum sýslumanns.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira