Tæplega fimm þúsund bílar á ábyrgð tryggingafélaganna 21. september 2010 06:00
Alls eru 4.684 ótryggð ökutæki í umferð í dag. Flest eru þau á skrá Umferðarstofu vegna vangoldinna tryggingagjalda. Tryggingafélögin bæta tjón sem þessi ökutæki valda. Ótryggðum ökutækjum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Árið 2005 voru þau tæplega 2.500 talsins og í fyrra tæplega 4.000. Þegar eigandi ökutækis hefur ekki greitt iðgjald sendir tryggingafélagið tilkynningu til Umferðarstofu sem skráir það ótryggt. Lögreglan fær útlistun á þeim bílum mánaðarlega og klippir af þeim númerin. Árni Friðleifsson, hjá umferðardeild lögreglunnar, segir mál sem þessi ekki vera í hæsta forgangi hjá lögreglunni en þeim sé þó vissulega sinnt eftir bestu getu. Ef ótryggt ökutæki veldur öðrum tjóni í umferðinni ber tryggingafélagi þess ökumanns sem tjóninu olli að bæta fyrir það. Séu liðnar meira en fjórar vikur síðan trygging féll niður sökum vanskila er fjármagn sótt í sjóð Alþjóðlegra bifreiðatrygginga á Íslandi (ABÍ), sem öll bílatryggingafélög eru með aðild að. Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri ABÍ, segir sjóðinn bæta fyrir hátt í hundrað tjón á ári og fjárhæðirnar geti skipt tugum milljóna. Algengt sé að rukkanir til einstaklinga vegna endurkröfurétts gangi misvel. „Við eigum mjög sterka endurkröfu á eigandann og ökumanninn og við eltum þetta fólk alveg til enda," segir Jón. „En ef við náum því ekki þurfa tryggingafélögin að koma til og borga okkur." Einar Magnús Magnússon, verkefnastjóri hjá Umferðarstofu, segir ákveðna sanngirni felast í ferlinu. „Það er verið að sjá til þess að fórnarlambið þurfi ekki að standa í kröfum til að fá tjónið bætt. Enginn hefur rétt á því að afsala sér tryggingu. Ökutækin verða ólögleg um leið og þau eru ótryggð og verða þá ekkert annað en tilræðistæki." - sv
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Sjá meira