Norrænir velferðarflokkar missa fylgið 21. september 2010 07:45 Mona Sahlin Leiðtogi sænska Sósíaldemókrataflokksins ræðir við blaðamenn. nordicphotos/AFP
Sænskir sósíaldemókratar hlutu slæma útreið í þingkosningunum á sunnudag. Þeir fengu 30,9 prósenta fylgi og hafa ekki fengið verri niðurstöður úr kosningum síðan 1914. Meira en sjötíu ár eru síðan þeir hafa tapað kosningum eftir að hafa verið í stjórnarandstöðu heilt kjörtímabil, þannig að stjórnmálaskýrendur eru farnir að velta því fyrir sér hvort hér séu einhver tímamót að eiga sér stað. Sósíaldemókrataflokkarnir, höfundar norræna velferðarkerfisins, mega muna sinn fífil fegurri víðar á Norðurlöndunum, þar sem þeir hafa verið ráðandi afl í stjórnmálum meira og minna allan seinni hluta síðustu aldar – að Íslandi undanskildu. Þannig hafa sósíaldemókratar í Danmörku nú verið í stjórnarandstöðu í næstum áratug, sem reyndar er ekki nándar nærri jafn óvenjulegt ástand þar í landi eins og í Svíþjóð. Almennt séð er fylgi vinstriflokka á Norðurlöndunum í lágmarki þessi misserin, að því er fram kemur í fréttaskýringu eftir Helenu Spongenberg á vefsíðunni EUobserver.com. Skýringin er, að sögn hennar, ekki síst hve mjög hefur fækkað í verkalýðsstétt þessara landa undanfarin 30 ár eftir að þungaiðnaður tók að flytjast frá Norðurlöndunum. Norðurlandabúar hafi frekar leitað í önnur störf þar sem vægi einstaklingsins er meira en starfsstéttarinnar. Mikilvægi verkalýðshreyfingar hafi að sama skapi minnkað. Hún segir hefðbundið fylgi flokkanna farið að eldast, svo æ erfiðara verði að afla fylgis meðal yngra fólks. „Hið gamla ástarævintýri kjósenda með flokkum sósíaldemókrata er einfaldlega gufað upp,“ segir Spongenberg. Í staðinn hafa komið fram lýðskrumsframboð, sem hafa náð fylgi með því að ala á ótta og andúð við innflytjendur og útlendinga. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Sjá meira