Íslenski boltinn

Ólafur þjálfar Fylki áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Þórðarson.
Ólafur Þórðarson.
Ólafur Þórðarson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fylki í Árbænum og verður því áfram þjálfari liðsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Fylkis.

Fylkir mætir í dag KR í lokaumferð Pepsi-deildar karla en liðið er í níunda sæti deildarinnar. Í fyrra stýrði Ólafur liðinu í þriðja sæti deildarinnar.

Ólafur þjálfaði einnig Fylki á árunum 1998 til 1999 og kom þá liðinu upp í efstu deild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×