Gunnleifur: Við gerðum bara ekki nógu vel á þessu tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2010 16:58 Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH, átti góðan leik í 3-0 sigri á Fram á Laugardalsvellinum í dag og FH-ingar geta þakkað honum fyrir að Framarar skoruðu ekki á þá í leiknum. Gunnleifur var þó eins og aðrir FH-ingar hálf niðurlútur í leikslok þrátt fyrir sigurinn. „Í ljósi úrslita annarsstaðar þá er þetta auðvitað svekkelsi en við gerðum allt sem við gátum til þess að vinna titilinn. Við unnum einhverja sex leiki í röð en það bara dugði ekki til," sagði Gunnleifur. „Það er ýmislegt sem gerist hjá okkur í sumar en þetta er bara svona í fótboltanum, stundum vinnur maður og stundum tapar maður. Við gerðum bara ekki nógu vel á þessu tímabili," sagði Gunnleifur. „Við unnum titil en við hefðum viljað vinna tvöfalt. Svoleiðis á það að vera í FH því FH vill vinna alla titla sem eru í boði. Það eru vonbrigði núna strax eftir leikinn en þegar við lítum yfir tímabilið þá getum við verið sæmilega sáttir með það," sagði Gunnleifur sem bjargaði nokkrum sinnum frá leikmönnum Fram í góðum færum. „Ég þurfti að vera vakandi og að skila mínu í leiknum. Þetta var tiltölulega öruggur sigur fannst mér. Við vorum kannski heldur aftarlega á vellinum en 3-0 segir sína sögu. Það var planið að liggja aðeins til baka í seinni hálfleik og beita skyndisóknum. Við fengum mörk upp úr því og mér fannst þetta ekki vera í hættu," sagði Gunnleifur en FH liðið fór mjög aftarlega á völlinn í seinni hálfleik. „Við reyndum að verja stöðuna 1-0 eins og við gátum best. Við ætluðum að bæta við mörkum úr skyndisóknum því við vildum ekki fá okkur mark með því að ana að einhverju," sagði Gunnleifur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Enski boltinn Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Enginn í bann en fullt af sektum Körfubolti Stinningskaldi safnaði fyrir sektinni og borgaði hana Körfubolti Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Íslenski boltinn Rifnar treyjur og rauð spjöld: Albert og Suslov sáu rautt eftir að upp úr sauð Fótbolti Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Enski boltinn Uppgjör: Keflavík 88-77 KR | Tene-ferð þjálfarans hafði engin áhrif Körfubolti Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Sport Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Kane ver mark Blika Í toppstandi og stefnir á alla titla Kom að luktum dyrum hjá Óskari: „Hef ekki tíma í þetta“ „Á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar“ Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Sérfræðingarnir svara: Hver hefur mest að sanna í sumar? Hollenskur varnarmaður gengur í raðir Vals Sjá meira