Hver fær gullskóinn í ár? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2010 07:00 Alfreð Finnbogason skorar hér fjórtánda markið sitt. Mynd/Anton
Það er ekki bara verið að keppa um Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferð Pepsi-deildar karla í dag því gull- silfur- og bronsskórinn er einnig í boði fyrir þrjá markahæstu leikmenn deildarinnar. Blikinn Alfreð Finnbogason er markahæstur fyrir lokaumferðina með 14 mörk en ólíkt hinum fjórum sem koma honum næstir þá mun Alfreð ekki spila með Blikum í dag þar sem að hann er í leikbanni. FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson var með þriggja marka forustu fyrir lokaumferðina í fyrra en KR-ingurinn Björgólfur Takefusa tók þá gullskóinn með því að skora fimm mörk í lokaleiknum sínum. Atli Viðar er nú í 3. sæti með 13 mörk, einu marki minna en Alfreð og jafn Stjörnumanninum Halldóri Orra Björnssyni sem er í 2. sæti á færri spiluðum leikjum. Halldór Orri Björnsson verður alltaf hærri en Atli Viðar og Alfreð þar sem hann hefur spilað færri leiki en Atli og færri mínútur en Alfreð. Halldór Orri er því í bestu stöðunni takist honum að skora hjá Blikum í dag. Grindvíkingurinn Gilles Ondo er tveimur mörkum á eftir Alfreð en er í bestu stöðunni verði hann jafn öðrum leikmanni. Ondo hefur aðeins leikið 19 leiki og verður því alltaf ofar á færri spiluðum leikjum. Blikinn Kristinn Steindórsson þarf að taka upp hanskan fyrir Breiðabliksliðið í forföllum Alfreðs í dag en hann á minnstu möguleikanna á því að vinna gullskóinn. Kristinn hefur skorað tveimur mörkum minna en Alfreð auk þess sem að hann hefur leikið alla leiki liðsins í sumar. Kristinn verður þó alltaf ofar en Atli Viðar nái hann að jafna hann þar sem að Kristinn hefur leikið mun færri mínútur. Markahæstu menn í Pepsi-deild karla: 14 mörk Alfreð Finnbogason, Breiðabliki 21 leikur/1870 mínútur13 mörk Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 20 leikir/1748 mínútur Atli Viðar Björnsson, FH 21 leikur/1822 mínútur12 mörk Gilles Ondo, Grindavík 19 leikir/1710 mínútur Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 21 leikur/1669 mínútur
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira