Innlent

Enn á gjörgæsludeild

Maðurinn sem slasaðist þegar hann ók á brúarstólpa við Svínavatn í Austur-Húnvatnssýslu í gærkvöldi er enn á gjörgæsludeild. Líðan hans er hinsvegar sögð eftir atvikum góð og hann er ekki í öndunarvél.

Við áreksturinn steyptist bíll mannsins fram af brúnni og hafnaði ofan á ísilagðri ánni. Þaðan náði maðurinn að hringja á hjálp og var hann sóttur af þyrlu landhelgisgæslunnar sem flutti hann til Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×