Innlent

Vilja aftengja stjórnmál og fjársterka aðila

Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi Vinstri grænna segir styrki til sérfræðiaðstoðar fyrir flokkana í borgarstjórn vera umfram þörf.
Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi Vinstri grænna segir styrki til sérfræðiaðstoðar fyrir flokkana í borgarstjórn vera umfram þörf.
Fulltrúar meirihlutans í forsætis­nefnd Reykjavíkurborgar taka ekki undir tillögu fulltrúa Vinstri grænna um að framlög til að borga sérfræðiaðstoð fyrir flokkana í borgarstjórn verði lækkuð um 15 milljónir króna.

Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG, benti á í greinargerð með tillögu sinni að greiðsla Reykjavíkurborgar til stjórnmálasamtaka hafi hækkað úr 13,9 milljónum króna árið 2006 í 32,75 milljónir árið 2007. Segir hann þessa miklu hækkun vera langt umfram þörf flokkanna. „Skerðing á fjármagni til stjórnmálaflokka, hvort sem það er frá einkafyrirtækjum eða opinberum aðilum, færir þá nær þeim tíma þegar starfsemin var fyrst og fremst byggð á félögunum í flokkunum sjálfum.“

Ólafur F. Magnússon úr F-lista minnti á fyrri tillögu sína um að framlög til stjórnmálasamtaka í borginni verði felld niður vegna ársins 2010.

Meirihlutinn sagði framlögin þegar hafa verið lækkuð um tólf prósent frá í fyrra og beindi því til borgarráðs að skoða hvort lækka eigi upphæðina á næsta ári.

Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks auk fulltrúa Samfylkingarinnar bentu á að styrkir til stjórnmálasamtaka hafi verið hækkaðir eftir lagasetningu. „Megintilgangur þeirrar lagasetningar var að auka gegnsæi og aftengja tengsl stjórnmála og fjársterkra aðila atvinnulífsins,“ sagði í bókun fjórmenninganna. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×