Innlent

Stjórnin felli Icesave lögin úr gildi

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra.
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Mynd/Eggert Jóhannesson

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, leggur til í grein í Fréttablaðinu í dag að ríkisstjórnin leggi fyrir Alþingi að fella Icesave lögin úr gildi og hætti þannig við þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Þorsteinn segir að lögin sem greiða á atkvæði um þann 6. mars næstkomandi séu með öllu marklaus. Í fyrsta lagi hafi ríkisstjórnin með nýju samningstilboði viðurkennt í verki að lögin séu óásættanleg. Í öðru lagi hafi viðsemjendur Íslands þegar fallist á betri kost en lögin mæla fyrir um. Að lokum hafi stjórnarandstaðan að kröfu Breta og Hollendinga fengið eins konar úrslitavald um nýja samninga. Á borðinu sé því engin lausn til að kjósa um. Þorsteinn segir að það eina sem fáist út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni sé staðfesting á að landið sé stjórnlaust.

Grein Þorsteins er hægt að lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×