Innlent

Átta prófkjör í dag

Kópavogur. Framsóknarmenn í bæjarfélaginu efna til prófkjörs í dag. Þrír sækjast eftir fyrsta sætinu.
Kópavogur. Framsóknarmenn í bæjarfélaginu efna til prófkjörs í dag. Þrír sækjast eftir fyrsta sætinu. Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Átta prófkjör fara fram á landinu í dag vegna komandi bæjar- og sveitarstjórnarkosninga. Á Ísafirði efnir Í-listinn til prófkjörs, en hann er sameiginlegt framboð Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra og óháðra. Samfylkingin efnir einnig til prófkjörs í Reykjanesbæ.

Í Sandgerði verður efnt til prófkjörs Samfylkingar, og K-lista og óháðra borgara. Sjálfstæðimenn verða með prófkjör í Reykjanesbæ og á Akranesi og þá verða Vinstri grænir með forval í Kópavogi.

Framsóknamenn efna til prófkjörs í Mosfellsbæ og Kópavogi. Þar sækjast þrír eftir fyrsta sæti, Ómar Stefánsson, Gísli Tryggvason og Einar Kristján Jónsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×