Ósammála VG varðandi sjúkrahús Róberts 27. febrúar 2010 18:00 Magnús Orri. Mynd/Vilhelm Gunnarsson „
Innan Vinstri grænna hefur verið nokkur andstaða við þessa framkvæmd og þá á forsendum þess að um einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu sé að ræða. Þessu er ég ósammála því uppbygging að Ásbrú er ekki einkavæðing enda þjónustar sjúkrahúsið erlenda sjúklinga og enginn kostnaður mun falla á Íslendinga," segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður viðskiptanefndar. Félag í eigu Róberts Wessman hyggst leigja gamla hersjúkrahúsið að Ásbrú í Keflavík undir einkasjúkrahús fyrir útlendinga. Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, og Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt hugmyndirnar. Magnús Orri segir í pistli á Pressunni að helsta verkefni stjórnmálamanna sé að vinna á atvinnuleysi á Íslandi í dag. „Uppbygging einkasjúkrahúss að Ásbrú krefst 100 milljón króna framlags ríkisins en skapar 300 störf, eykur veltu þjónustuaðila og hefur fjölmörg önnur jákvæð áhrif á samfélagið á Reykjanesi. Sem dæmi um ávinning þá kostar það ríkið 500 milljónir króna að hafa 300 manns á atvinnuleysisskrá." Magnús segist ekki ætla að standa í vegi fyrir þessari atvinnuuppbyggingu. „Það væri óskandi ef fleiri frumkvöðlar kæmu til ríkisins og gætu skapað 300 sjálfbær störf með 100 milljón króna stuðningi frá hinu opinbera, sem fljótir verða að skila sér margfalt til baka."
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Fleiri fréttir Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Sjá meira