Gengið vonandi frá sölu Liverpool fyrir mánaðarlok Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. ágúst 2010 12:15 Martin Broughton og Roy Hodgson. Nordic Photos / Getty Images
Martin Broughton, stjórnarformaður Liverpool, vonast til þess að hægt verði að ganga frá sölu félagsins fyrir lok ágústmánaðar. Liverpool er nú í eigu Bandaríkjamannanna Tom Hicks og George Gillett en þeir vilja selja félagið. Broughton var fenginn til þess að taka við stjórnarformennsku í apríl síðastliðnum í þeim tilgangi að sjá um söluferlið. Broughton sagði í samtali við Guardian-blaðið í dag að þó nokkur tilboð hafi borist stjórninni en nú síðast lýsti kínverskur viðskiptamaður, Kenny Huang, áhuga á því að kaupa Liverpool. Huang gaf í skyn að hann myndi eignast ráðandi hlut í félaginu með því að taka yfir skuld Liverpool hjá Royal Bank of Scotland-bankanum upp á litlar 237 milljónir punda. Broughton sagði bankann þó ekkert að hafa segja um söluna. „Það er stjórn Liverpool sem stýrir söluferlinu. Þau tilboð sem hafa farið beint til bankans hafa komið á mitt borð. Og þau hafa verið nokkur," sagði Broughton. „En það er enn markmið okkar að ganga frá sölunni áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðamótin. Það er takmarkið en ekki lokafrestur. Við munum halda áfram að því að vinna að þessu." Huang virðist þó afar áhugasamur um að eignast Liverpool sem fyrst svo að Hodgson fái tíma til að kaupa nýja leikmenn til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Mest lesið Töpuðu 15-0 í síðasta leik og mættu ekki til leiks í gær Íslenski boltinn Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Enski boltinn Uppgjör: KR-Stjarnan 1-2 | Örvar kom Stjörnunni inn í titilbaráttuna Íslenski boltinn Fernandes ósáttur: „Dómarinn baðst ekki afsökunar“ Enski boltinn „Getur ekki látið 140 milljóna punda mann í varaliðið“ Enski boltinn Botna lítið í Amorim: „Hann er ein taugahrúga“ Enski boltinn Fer í aðgerð á föstudag og frá í sex til átta mánuði Íslenski boltinn Slot hefur enga samúð með Eddie Howe vegna Isaks Enski boltinn Foreldrum Bellinghams bannað að koma í klefann hjá Dortmund Fótbolti Fjármagnar tennisferilinn á OnlyFans Sport Fleiri fréttir Van Dijk um Rio: Draumabyrjun en hann verður að vera auðmjúkur Rio setti nýtt Liverpool met Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Selja „Isak er rotta“ treyjur fyrir utan völlinn og eldspýtur fylgja með Slot hefur enga samúð með Eddie Howe vegna Isaks „Getur ekki látið 140 milljóna punda mann í varaliðið“ Isak utan vallar en þó í forgrunni Saka frá í mánuð og missir af Liverpool Botna lítið í Amorim: „Hann er ein taugahrúga“ Rooney feginn að Dowman tók ekki vítið Fernandes ósáttur: „Dómarinn baðst ekki afsökunar“ Sjáðu Grealish fara á kostum og öll mörkin í gær Allt jafnt í Fulham og bæði lið bíða enn eftir fyrsta sigri Fullkomin byrjun Everton á nýja heimilinu Áfram í marki Man. Utd eftir mistökin Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Rodri og Foden klárir í slaginn Viljum ekki leikmenn sem vilja ekki Spurs Ósáttur við aðgerðaleysið: Dreg fram skóna sjálfur Ófriðarbál hjá Forest og stjórinn mögulega rekinn Hvetur fólk til að brjóta reglu og velja Haaland Sjá meira