Pabbastelpa hneykslar presta Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. maí 2010 10:44 Viktoría krónprinsessa vill að faðir sinn leiði sig inn kirkjugólfið í brúðkaupinu. Mynd/ AFP.
Viktoría, krónprinsessa Svía, er harðlega gagnrýnd af sænskum prestum þessa dagana. Ástæðan er sú að hún hefur ákveðið að faðir hennar, Karl Gústav konungur, skuli fylgja henni inn kirkjugólfið þegar að hún giftir sig í sumar. Á Íslandi og víðar tíðkast það að faðirinn fylgi brúðinni inn kirkjugólfið við upphaf athafnar. Í Svíþjóð er hefðin hins vegar sú að brúðhjónin gangi saman inn kirkjugólfið. Það var Anders Wjryd, erkibiskup í Svíþjóð, sem fyrstur gagnrýndi þessa tilhögun krónprinsessunnar í sænska Aftonbladet. Hann segir að þessi hefð sem hún ætli að fylgja sé of bandarísk. Jafnframt telur hann að það sé hægt að túlka þá atburðarrás þegar að faðir brúðar gefi dóttur sína af hendi til mannsefnisins þannig að konan sé veraldleg eign sem sé í raun bara að skipta um hendur í hjónavígslunni. Erkibiskupinn telur því að ameríska fyrirkomulagið beri vott um kvenfyrirlitningu. Fleiri prestar fylgdu á eftir og nú hafa alls níu sænskir prestar gagnrýnt þetta fyrirkomulag sem prinsessan ætlar að fylgja. Þeir hafa sent henni bréf og beðið hana um að endurskoða ákvörðun sína. Einn af prestunum hefur jafnframt stofnað Facebook hóp til að mótmæla ákvörðun Viktoríu. Prestarnir hafa hins vegar ekki sannfært prinsessuna. Hún situr föst við sinn keip og ætlar að ganga inn kirkjugólfið með pabba sínum og hitta svo mannsefnið við altarið.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira