Erlent

Flugritarnir fundnir

Flugvélin fórst við lendingu á flugvellinum í Mangalore í morgun. Flugritar vélarinnar eru fundnir. Mynd/AP
Flugvélin fórst við lendingu á flugvellinum í Mangalore í morgun. Flugritar vélarinnar eru fundnir. Mynd/AP Mynd/AP
Boeing farþegaflugvél indverska flugfélagsins Air India Express sem fórst við lendingu á flugvellinum í Mangalore í morgun, lenti allt of innarlega á flugbrautinni og skautaði fram af henni niður bratta hlíð þar sem hún brotnaði í sundur í þykku skóglendi. Eldur braust út í brakinu. Flugvöllurinn þykir með þeim erfiðari að lenda á þar sem hann stendur á hæð með brattar hlíðar við báða flugbrautarenda.

Nú er talið að 158 manns hafi farist og átta lifað flugslysið af. Flugritar flugvélarinnar eru fundnir. Sumir þeirra sem sluppu lifandi eru ótrúlega lítið slasaðir og gátu gefið góðar lýsingar á því sem gerðist. Aðrir eru illa slasaðir og mikið brenndir.


Tengdar fréttir

Mannskætt flugslys í Indlandi - átta komust lífs af

Átta manns lifðu af og 159 fórust í flugslysi á Indlandi í morgun, þegar farþegaþota hrapaði við borgina Mangalore í suðvesturhluta landsins. Margir hinna átta sem lifðu af slysið eru mikið slasaðir en nokkrir þeirra voru þó með fulla meðvitund og gátu gefið lýsingu á því sem gerðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×