Fiskimjölið var skrásett sem hvalmjöl 19. mars 2010 17:36
Vegna frétta um meintan ólöglegan útflutning á hvalaafurðum hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið kannað þau tilvik sem vísað er til og gögn eru um á vef Hagstofu Ísland samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. Sú rannsókn hefur leitt meðal annars í ljós að fiskimjöl var skráð sem hvalmjöl. Yfirlýsinguna má lesa hér fyrir neðan: Við eftirgrennslan um meintan útflutning á hvalmjöli til Danmerkur kom í ljós að umrætt magn, 775 kíló í janúar 2009 og 22.750 kíló í mars 2009, var fiskimjöl sem vegna mistaka í tollskýrslugerð verið skráð á tollnúmer fyrir hvalmjöl. Viðkomandi fyrirtæki hefur nú leiðrétt mistökin. Hagstofa Íslands mun í framhaldinu leiðrétta þetta á vef sínum þann 31. mars n.k. þegar endurskoðaðar lokatölur fyrir útflutning 2009 liggja fyrir. Íslensk yfirvöld munu einnig taka málið upp við yfirvöld í Danmörku. Í febrúar 2010 var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti tilkynnt að íslenskt útflutningsfyrirtæki hefði flutt út 250 kíló af hrefnukjöti til Lettlands. Kjötinu hefði fylgt íslenskt CITES útflutningsvottorð eins og lög segja fyrir um. Hrefna er hjá CITES (alþjóðasamningi um verslun með dýr í útrýmingarhættu) skráð á Viðauka I, sem hefur í för með sér miklar hömlur á alþjóðaverslun. Ísland hefur gert athugasemd við þessa listun fyrir sína hönd og er því ekki bundið reglum um verslun með hrefnu samkvæmt Viðauka I. Ísland hefur þó að eigin frumkvæði fylgt reglum sem gilda um tegundir á Viðauka II þegar kemur að verslun með hvalafurður. Reglur CITES um verslun með tegundir á Viðauka II gera kröfu um að útflutningsríki gefi út CITES-útflutningsvottorð, en engin lagaskilda er fyrir útflutningsland að krefjast innflutningsleyfis. Engu að síður var haft samband við íslenska útflytjandann og honum tjáð að Lettland hefði ekki gert athugasemd við listun hrefnu á Viðauka I og þarlendum yfirvöldum óheimilt að gefa út innflutningsvottorð fyrir farminum. Þar sem sendingin var farin úr land hafði útflytjandi samband við kaupandann úti og lét hann vita af þessu. Í framhaldinu hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti verið með í athugun hvaða leiðir séu færar til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig og mun verða gripið til viðeigandi ráðstafana á næstunni.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira