Innlent

Dánartíðni vegna vímuefnaneyslu óvanalega há fyrstu fjóra mánuðina

Þórarinn Tyrfingsson segir of marga deyja úr vímuefnaneyslu.
Þórarinn Tyrfingsson segir of marga deyja úr vímuefnaneyslu.

Á undanförnum 10 árum hafa á milli 40 og 50 einstaklingar dáið ótímabært eða fyrir 55 ára aldurinn, úr áfengis- eða vímuefnaneyslu samkvæmt leiðara sem Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, sem birtist í SÁÁ blaðinu á dögunum.

Hann segir að þrjú ár hafi þessi tala farið yfir 50, það er árið 2000, 2005 og 2007.

„Við vitum ekki nánar úr hverju þetta fólk deyr en getum séð af öðru að háa talan fyrir 2000 og 2005 svarar til ungra vímuefnafíkla sem tóku of stóran skammt af morfíni," skrifar Þórarinn í SÁÁ blaðið.

Talan fyrir árið 2009 er ásættanleg að mati Þórarins miðað við árin á undan þó að hlutfall þeirra sem eru 20-30 ára þegar þeir deyja sé nokkuð hátt.

Þá skrifar Þórarinn að það þurfi að hafa í huga að þjónustuskerðing er ekki komin til framkvæmda sem nokkru nemur árið 2009 og að á árinu 2010 hafa verið boðaðar minni fjárveitingar til bráðamóttöku sjúkrahúsanna, sjúkraflutninga, löggæslunnar og sjúkrahússins Vogs.

„Þessi þjónustuskerðing bitnar vissulega á veikum vímuefnafíklum sem þurfa hvað mest á þessari þjónustu að halda. Það vekur því ugg, þótt allt of snemmt sé að segja hvernig árið 2010 mun endanlega koma út, að tölur um dauðsföll úr gagnagrunni Vogs fyrir fyrstu 4 mánuði ársins 2010 eru hærri en á vondu árunum eftir 2000," skrifar Þórarinn svo.

Hægt er að lesa leiðarann í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×