Enski boltinn

Gerrard sleppur við refsingu vegna V-merkisins

Elvar Geir Magnússon skrifar
Steven Gerrard kastar bolta.
Steven Gerrard kastar bolta.

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, fær ekki refsingu frá enska knattspyrnusambandinu fyrir V-merkið sem hann sýndi dómaranum Andre Marriner.

Gerrard sýndi Marriner tvo putta í tapleik gegn Wigan en þessi merkjasending er mjög móðgandi í Bretlandi.

Atvikið átti sér stað eftir að Gerrard var áminntur í leiknum og náðist það á myndband. Það er aðeins þó stuðst við myndbandsupptökur og mönnum refsað eftir á í þeim atvikum sem dómarinn sér ekki.

Í þessu tilfelli sá Marriner viðbrögðin frá Gerrard en taldi að leikmaðurinn ætti þó ekki að fá frekari refsingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×