Innlent

Niðurfellingar Kaupþings enn til rannsóknar

Ólafur Þór Hauksson
Ólafur Þór Hauksson

Embætti sérstaks saksóknara rannsakar enn hvort niðurfelling persónulegra ábyrgða starfsmanna Kaupþings vegna hlutabréfakaupa í bankanum samræmist lögum.

Ólafur Þór Hauksson segir málið hafa marga fleti en sé þó ekki í sérstökum forgangi enda liggi embættinu ekki á að tryggja sér aðgang að gögnum vegna þess eins og í öðrum málum.

Stjórn Nýja Kaupþings, nú Arion, ákvað á sínum tíma að bíða með að taka endanlega ákvörðun um niðurfellingarnar þar til saksóknari hefði lokið rannsókninni. Lánin, alls 47,3 milljarðar, voru þó færð yfir í Nýja Kaupþing á núlli, að því er Viðskiptablaðið fullyrti í síðustu viku. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×