Erlent

Húðflúrin komu upp heimskan innbrotsþjóf

Anthony Brandon Gonzales með töff tattú.
Anthony Brandon Gonzales með töff tattú.

Lögreglan í Bandaríkjunum var ekki lengi að handsama hinn tvítuga Anthony Brandon Gonzales fyrir innbrot í Colorado en hann braust inn á heimili Elvis-eftirhermu og stal þaðan verðmætum.

Vitni sem lögreglan ræddi við lýsti honum nokkurn veginn þannig að hann hefði verið með húðflúrið „East Side" á efri vörinni og töluna „13" á hökunni. Saman myndaði húðflúrið nokkurskonar skegg.

Þá skipti engu að Gonzales væri með grímu, húðflúrin sáust samt.

Starf lögreglunnar reyndist enn auðveldara þegar í ljós kom að Gonzales er þegar í fangelsi fyrir fíkniefnamisferli. Ofan á það mun svo væntanlega bætast ákæra vegna innbrotsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×